Anna Þorbjörg Jónsdóttir

Forstöðumaður viðskiptaþróunar

anna@alfaframtak.is
+354 832 4030

Anna Þorbjörg býr yfir áralangri reynslu af störfum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Anna starfaði í sjö ár við uppbyggingu hjá Fossum fjárfestingarbanka, síðast sem framkvæmdastjóri eignarstýringarsviðs bankans. Þar áður var Anna Þorbjörg fjárfestingastjóri hjá World Financial Desk, hátækni fjármálafyrirtæki með aðsetur í New York, en hún var jafnframt einn stofnenda félagsins og stjórnarformaður. Anna Þorbjörg er með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands, M.A. gráðu í hagfræði frá UCLA og M.Sc. gráðu í fjármálastærðfræði frá USC. Anna Þorbjörg hefur lokið prófum í verðbréfaviðskiptum á Íslandi og í Bandaríkjunum.